Stundum eru bestu niðurstöðurnar fyrir leitarfyrirspurnina ekki á þínu tungumáli. Til að gera leitina alþjóðlega skaltu prófa að nota valkostinn "Þýdd leit" í Google Leit. Hann ákvarðar hvaða tungumál hafi bestu upplýsingarnar fyrir leitarfyrirspurnina og þýðir vefniðurstöður úr þessum tungumálum yfir á þitt tungumál.
Ef þú leitar að erlendu hugtaki með Google Leit gætirðu fengið leitarniðurstöður sem eru ekki á þínu móðurmáli. Smelltu einfaldlega á hlekkinn "Þýða þessa síðu" hjá leitarniðurstöðunni til að skoða vélþýðingu á síðunni í Google Translate.
Ef um einfalda þýðingu er að ræða þarftu ekki einu sinni að fara af leitarniðurstöðusíðunni í Google. Skrifaðu bara þýðingarfyrirspurnina í leitarreitinn og sjáðu þýðingarniðurstöðuna birtast samstundis.
Prófaðu Google Chrome, fljótvirka og örugga vafrann okkar sem er á mörgum tungumálum. Á svipaðan hátt og Google Tækjastikan greinir Chrome sjálfkrafa þegar þú heimsækir síðu á erlendu tungumáli og þýðir textann samstundis yfir á þitt móðurmál.
Google Tækjastikan er vafraviðbót fyrir Internet Explorer og Firefox sem greinir sjálfkrafa vefsíður sem eru skrifaðar á erlendu tungumáli og þýðir texta þessara síðna yfir á þitt móðurmál.
Hvað gerirðu ef þú færð mikilvægt tölvuskeyti sem er ekki á þínu tungumáli? Ef þú notar Gmail getur það sjálfkrafa þýtt erlend tölvuskeyti yfir á þitt eigið tungumál. Virkjaðu bara eiginleikann í Gmail Labs. Svona ferðu að því.
Þegar þú notar Gmail geturðu líka spjallað á mörgum tungumálum við pennavini í útlöndum. Bættu Google Translate Chat Bot við samtalið til að yfirvinna tungumálahindranir.
Hefurðu einhvern tíma viljað tala við fólk hvaðanæva úr heiminum? Skoðaðu þýðingareiginleikana í Google Hópum. Þú getur birt skilaboð á þínu tungumáli og séð svör frá öðrum notendum hvaðanæva úr heiminum sem hafa verið þýdd yfir á þitt tungumál. Við erum mjög hrifin af þessum eiginleika og notum hann í okkar eigin umræðuhópi til að vera í sambandi við notendur.
Prófaðu þetta núna: Heimsæktu Google Translate umræðuhópinn.Viltu taka þátt í umræðu á mörgum tungumálum? Notaðu Google Moderator sem þýðir sjálfkrafa spurningar og athugasemdir úr öðrum tungumálum yifr á þitt eigið.
Prófaðu þetta núna: Heimsæktu Google Moderator.Þýddu heil skjöl og frasa og orð í skjölum í Google Skjalavinnslu. Frekari upplýsingar má finna hér.
Prófaðu þetta núna: Gerðu skjal í Google Skjalavinnslu.Viltu ná til áhorfenda um allan heim á YouTube? Með nokkrum smellum geturðu sjálfkrafa bætt texta við myndskeiðin þín og bætt við þýddum lokuðum skýringartextum. Frekari upplýsingar má finna hér.
Heimsæktu translate.google.com/m á farsímanum þínum til að skoða Google Translate í sérstakri útgáfu fyrir farsímann.

Til að leysa hinn raunverulega kraft Google Translate úr læðingi skaltu hlaða niður Android-forritinu frá okkur. Þú getur talað við það og heyrt aftur talaða þýðingu. Forritið styður einnig Feril, Stjörnumerkingar og ítarlega orðabók fyrir alla orðaunnendur.
Prófaðu það núna! Skannaðu þetta strikamerki með því að nota forritið "Strikamerkjaskanni" til að hlaða niður Google Translate fyrir Android:

Vélþýðing er frábær leið til að gera vefsvæðið þitt eða fyrirtæki aðgengilegt fyrir alþjóðlegan markað. Svona getur Google Translate hjálpað þér og fyrirtækinu þínu:
Bættu við Google Translate vefeiningunni til að gera vefsvæðið þitt samstundis alþjóðlegt. Hún er bara nokkrar einfaldar línur af HTML - prófaðu þetta núna.
Hannaðu þýðingarlausn fyrir vefsvæðið þitt með því að nota Google Translate AJAX-viðmótið. Frekari upplýsingar má finna á Google kóðasíðunni.
Ertu atvinnuþýðandi? Þú getur aukið afköst þín með því að nota Google Translator Toolkit. Translator Toolkit býður upp á WYSIWYG notendaviðmót fyrir samhengi þegar verið er að þýða, vélþýðingu, orðalista og möguleika á að hlaða upp og niður þýðingarminnum.