Google

Bak við tjöldin hjá Google Translate

Fáðu upplýsingar um hvernig þýðingarnar okkar eru gerðar

Hvað er Google Translate?

Google Translate er ókeypis þýðingaþjónusta sem býður upp á tafarlausar þýðingar á milli 57 ólíkra tungumála. Það getur þýtt orð, setningar og vefsíður á milli allra tungumála sem eru studd, í hvaða samsetningu þeirra sem er. Með Google Translate vonumst við til að gera upplýsingar almennt aðgengilegar og gagnlegar, sama á hvaða tungumáli þær eru skrifaðar.

Hvernig virkar þetta?

Þegar Google Translate býr til þýðingu leitar það að mynstrum í hundruðum milljóna skjala til að ákveða hvaða þýðing er best fyrir þig. Með því að greina mynstur í skjölum, sem hafa þegar verið þýdd af manneskjum, getur Google Translate giskað skynsamlega á hver rétt þýðing ætti að vera. Þetta ferli, sem felur í sér að leita að mynstrum í miklu magni af texta, kallast "tölfræðileg vélþýðing". Þar sem þýðingarnar eru gerðar af vélum verða ekki allar þýðingarnar fullkomnar. Eftir því sem Google Translate getur greint fleiri skjöl, sem hafa verið þýdd af manneskjum, þeim mun betri verða gæði þýðinganna. Því er nákvæmni þýðinga stundum mismunandi á milli tungumála.

Hvaða tungumál styður Google Translate?

Google Translate styður eins og er 57 tungumál:

afríkaans
albönsku
arabísku
hvítrússnesku
búlgörsku
katalónsku
kínversku
króatísku
tékknesku
dönsku
hollensku
ensku
eistnesku
filippínsku
finnsku
frönsku
galisísku
þýsku
grísku
hebresku
hindí
ungversku
íslensku
indónesísku
írsku
ítölsku
japönsku
kóresku
lettnesku
litháísku
makedónsku
malasísku
maltnesku
norsku
persnesku
pólsku
portúgölsku
rúmensku
rússnesku
serbnesku
slóvakísku
slóvensku
spænsku
svahílí
sænsku
taílensku
tyrknesku
úkraínsku
víetnömsku
velsku
jiddísku

Núverandi alpha-tungumál eru:

armenska
azerbaijeska
baskneska
georgíska
haitískt kreólamál
úrdú

Google Translate prófar önnur tungumál sem kallast "alpha-tungumál" og gæði þýðinga úr og yfir á þessi tungumál kunna að vera minni en úr og yfir á studd tungumál. Við vinnum stöðugt að því að styðja önnur tungumál og munum gera þau tiltæk um leið og gæði þýðinganna uppfylla kröfur okkar.

Hvernig get ég bætt gæði þýðinga?

Ef þú tekur eftir því að einhver þýðinga okkar gæti verið betri skaltu smella á hlekkinn "Senda inn betri þýðingu" á niðurstöðusíðunni til að stinga upp á leiðréttingu. Þú getur einnig hjálpað til við að bæta gæði þýðinga með því að nota Translator Toolkit til að þýða eða með því að hlaða upp þýðingarminnum í Translator Toolkit.

Viltu fá frekari upplýsingar?

Ef þú ert enn með spurningar um Google Translate eða vilt senda inn athugasemd skaltu athuga Umræðuhópinn fyrir Google Translate.

Þú getur lesið meira um nýjustu uppfærslur á Google Translate blogginu og um önnur rannsóknarverkefni hjá Google á vefsvæðinu Google rannsóknir.

Til að fá frekari upplýsingar um fræðin að baki vélþýðingum skaltu skoða þessar vefsíður:
Skjalasafn fyrir vélþýðingar
Tölfræðileg vélþýðing